Rip Miriam Makeba
November 10, 2008

(Mbl.is)
Suður-afríska söngkonan Miriam Makeba er látin, 76 ára að aldri. Hún hné niður á tónleikum utan við Napólí á Ítalíu í gærkvöldi og var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum hjartaáfalls í nótt.
Makeba var á sínum tíma tákn fyrir baráttuna gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku og bjó lengi í útlegð en snéri aftur heim á tíunda áratug síðustu aldar eftir að Nelson Mandela var sleppt úr fangelsi.
Makeba fæddist í Jóhannesarborg 4. mars 1932. Móðir hennar var af ættbálki Swasimanna og faðir hennar var af ættbálki Xhosa. Hún vakti alþjóðlega athygli þegar hún söng með flokknum Manhattan Brothers, sem fór í tónleikaferð um Bandaríkin 1959 en hún var svipt suður-afrískum ríkisborgararétti ári síðar.
Hún var um tíma gift suður-afríska listamanninum Hugh Masekela, sem einnig var lengi í útlegð.
Þekktasta lag Makeba er Pata Pata, sem kom út árið 1967 og lýsir dansi í þorpi. Hún afsalaði sér hins vegar óafvitandi greiðslum fyrir lagið og átti oft í fjárhagserfiðleikum. Hún hafði ekki efni á að kaupa líkkistu þegar einkadóttir hennar, Bondi, lést árið 1985. Hún greftraði hana ein, og bannaði nokkrum blaðamönnum að fjalla um útförina.
Makeba var á Ítalíu til að taka þátt í tónleikum til styrktar rithöfundinum Roberto Saviano, sem hefur skrifað um ítölsku mafíuna og fengið líflátshótanir fyrir vikið.
Makeba kom hingað til lands í maí 2006 og söng í Laugardalshöll á vegum LIstahátíðar í Reykjavík.
Crybaby
November 10, 2008
Ég er nú þekkt fyrir það að fella tár yfir allskonar vitleysu en ég táraðist nú í fyrsta skipti yfir youtube!!!
Var að horfa á þetta video þarsem Stevie Wonder er að syngja í jarðaförinni hjá Luther Vandross hinum mikla.
Kannski var ég illa upplögð eða eitthvað en mér finnst þetta roooosalegt!!!
Snilld á sunnudegi
October 26, 2008
Horfið á þetta!
October 24, 2008
Alger snilld. Þó þessi kona sé norn
Holy F*ck
October 9, 2008
Já, það er nú pæling hvort maður eigi ekki að blúúúúgga örlítið? Búin að fá ör-kvartanir um engin skrif, bara jútúb og ruglerí….
Hvað skal segja…
Skólinn – Insane. Held að það sé ekki til neitt betra orð í rauninni… Er í kúrs núna sem heitir Markaður og Form og er samstarfsverkefni með markaðsfræðinemum úr Háskóla Reykjavíkur… Fengum fyrirtæki til að vinna með og eigum að hanna eitthvað product annaðhvort eða concept í kringum það..Fyrirtækið okkar heitir Fjöliðjan og er á Akranesi… fyrir fólk með special needs, vinnustaður og endurhæfing.
Þetta er rosalega challenging og búið að taka þvílíkan tíma og vinnu…Og námskeiðið rétt rúmlega hálfnað og engan veginn að minnka vinnan… Svo er ég í öðrum kúrsum líka og það er bara voða fínt…Finnst reyndar skemmtilegast í tískuteikningunni, er að reyna að opna mig fyrir nýjum pælingum í teikningunni hjá mér og lenti einmitt í smá svona “breakthrough” í gær, sem er einmitt mjöööög gaman !
FÍH-skólinn – Ógeðslega er gaman að vera komin aftur í skólann.. Iða af spenningi fyrir söngtímana og er að reyna að taka á mér að vera skipulögð og organized fyrir stigsprófið í vor, svo það lendi ekki í einhverju madness á sama tíma og annars árs tískusýningin er…Holy canoodle. Finn samt að það er erfitt að juggle-a skólunum báðum og sérstaklega þegar ég er með Gabríel…en það meikast allt á endanum…
Lífið - Jájá…Einkennist bara af þessum skólum mínum !!!
Heilsan – Frekar súr…er með króóónískan hausverk og er, amk þessa vikuna, búin að vera svo þreytt á kvöldin að ég man ekki eftir því að hafa sofnað…That’s kinda sick.
En það er bara þreyta og ég passa mig…jájájá…. Líður reyndar núna einsog ég sé komin með hita, er rauðeygð og með geðveikan hausverk…vegna þreytu! Hah..og hananú
Er að fara í leikhús næstu helgi og þarnæstu…Það verður óóógurlega gaman! Ætla á Gosa á sunnudaginn nk. með mömmu og gabríel og svo fer ég á Fólkið í blokkinni laugkvöldið þarnæst…
Rock’n'roll…
Ætla að preppa morgundaginn, baða, svæfa, læra, læra, læra, læra……..Og svo framvegis
Ást&Friður&Kreppa

Whose line is it anyway? HORFIÐ!
October 5, 2008
Sumt er bara of fullkomið…SNL
September 29, 2008
What what in the butt remix!
September 17, 2008
I said what what? in the butt?
September 14, 2008
Þessi gæi er alveg guðdómlegur og ég er búin að hlusta á þetta lag oooft ! Múhaha..
Helgin mín var góð… Fór í fyrirpartý til Birtu sætu, skólapartý uppí skipholti og dansaði svo í góðum félagsskap á Dillon … sem var mjöög gaman! Laugardagurinn fór í algert chill, við Gabríel lágum bara í mesta haugakúri sem ég hef upplifað lengi…. hihi…
Framundan er skissuvinna – algert keis………er að gera collection sem er “New classic Ready to wear” .. Research vinnan gekk ekki vel en ég er svona..já, aðeins að fatta hvað ég á að gera..sem er ekki verra! Bara erfitt þegar “Andinn” er ekki yfir manni að reyna að kreista uppúr sér e-ar flíkur og hugmyndir .. But what the hell…. újéss..
sakna gus gus ævintýranna….Rússlandsferðin var ógeðslega skemmtileg…Festivalið sem við spiluðum á var svona “Lounge stemningar jazz” e-ð…. mezzoforte fyrr um kvöldið og alles!
En ég skemmti mér vel…skoðaði margt með Ástu minni, ma.rauða torgið og svoleiðis stuð…
vá ég er alveg orðlaus..útskýrir stemninguna í mér kannski vel… *Bleh*
Fannst ég bara verða að henda inn einhverju rituðu máli en ekki endalaus youtube video eða myndir.
ást&friður
Erla
pantekki
September 10, 2008


