panic attack og bull-pólverjar
January 27, 2008
Mikið er nú fúlt að helgin sé bara búin! En við tókum því ágætlega rólega, á föstudagskvöldið lá ég úrvinda uppi í sófa að horfa á sjónvarp/tölvuna, á laugardeginum tókum við litla fjölskyldan upp á því að fara í sund! Það var ótrúlega gaman, Gabríel finnst svo gaman að svamla um og þykjast vera hákarl — þið vitið hvernig, þið sem þekkið hann ![]()
Fórum og keyptum okkur ís, ég kíkti á m&p sem voru að taka til í kompunni og ég lenti í mega sorteringu að henda og plana — þurfti m.a. að fara í gegnum barnaföt og óléttuföt og það voru skemmtilegar minningar og mörg “awwwww!” moment hjá mér og mömmu, hehehe!
Svo chilluðum við Jónas um kvöldið, byrjuðum á Sweeny Todd en ákváðum að það yrði nú betra að sjá hana í bíó með texta – byrjuðum á The assassination of Jesse James og hættum líka á henni, erfitt svona cowboy tal !

Fékk líka fyrsta “panic attackið” yfir því að ég væri að fara út til Parísar, grét einsog smábarn í fanginu á Jónasi, að segja honum í ekkasogum hvað ég gæti ekki farið frá þeim og hvað ég ætti eftir að sakna þeirra mikið (sjííííz) og hvað mér fyndist leiðinlegt að missa af alveg heilum þrem vikum í lífi Gabríels þarsem hann vex svo fljótt og daglega eru nýjir hlutir að gerast hjá honum!! (quote frá Jónasi sem sló í gegn “farðu ekki nú að gráta” hehehe….you had to be there)
En þetta tók semi-fljótt af, hlógum smá að þessu seinna um kvöldið
Þannig að ég segi… Þið stelpur sem ég fer með út — POOR YOU !!! Hahaha! Tissue par excellance!

Nei nei, segi bara svona…Drekki mér í vinnu og held mér occupied og þá ætti þetta að vera bara flott ![]()
Ég púlla bara eina Wonderwoman á þetta…Við erum nefnilega svo líkar…hah

Svo fórum við í leikhús áðan! Fór á Ræðismannaskrifstofan og Hvað GEt ÉG NÚ SAGT? Ég skal byrja á því að ég vissi EKKERT hvað var að GERAST þegar allir byrjuðu á “rússkí bradnskí kúsrski” hahaha.. Mjög klúr húmor, óskiljanlegur söguþráður og algerlega hundsteikt… en ég hló, ansi oft reyndar, og skemmti mér vel.. Hefði samt eiginlega ekki haft jafn gaman að þessu ef ég hefi borgað fyrir leikhúsmiðana — ég er bara snobb held ég hahhaha…..
En…Alltaf gaman að fara í leikhús!!!

Skóli á morgun, byrja í nýjum kúrs og svona.. Mega stuð… Kenndi Gabríel í dag að gera peace merki og segja “pís”…það er bara það krúttlegasta í heimi.. enda mesta krúttið í bænum !!!!!!
LATER!
Erla
Juno
January 26, 2008
Ég varð bara að láta ykkur vita um yndislega bíómynd sem ég var að horfa áðan, sem heitir Juno… Fjallar um unglingsstelpu sem verður ólétt og ákveður að gefa barnið til ættleiðingar… Mikill Garden State fílingur í henni og heví gaman að sjá “George Micheal” og Michael Bluth aftur saman á skjánum ![]()
Check it out! Trilljón vasaklútar og milljón bros

Annars hitti ég hana Hildi Lind í dag eftir…úúúff, allavega tæp tvö ár eða eitthvað!!! Það var mega nice, sátum inni á Amokka í snjónum og ræddum um allt á milli himins og jarðar… Frekar gott!!!
fór svo í Smáralind að tölta um, leita að buxum og fékk panic attack–hvað ég verð púkó í parís!!! (Ætli ég skrifi ekki reynslusögu mína með þessum titli ,,Púkó í París”) Frekar fyndið..var farin að skoða og skoða og fá svona “sjitt…sjitt, ég á ekkert til að vera í!!” Eitthvað sem er frekar asnalegt að spá í en það verður pottþétt eitthvað spáð í þessu fyrst maður er svona í þessum buisness…!!!
Þannig að!
Ef einhver vill lána mér eitthvað fab til að taka með út þá er það GUÐ VELKOMIÐ!!! HAHAHAHAHAHAHA (–manískur panic hlátur)
![]()
Erla, the silly lady
Totem og þreyta
January 24, 2008
Já, ég er enn á lífi — ég fór í yfirferðina og hún gekk vel – fyrir utan gagnrýni á liti, sem ég átti von á og var hjartanlega sammála – en collectionið sjálft fékk góða umsögn, klæðilegt, ótilgerðarlegt og eitthvað sem maður vildi ganga í… Ég var ánægð að hafa spjarað mig alla nóttina og morguninn og pulled this off!
Kom svo heim, nöllaðist eitthvað og lagðist svo til hvílu um 12 leytið og vaknaði rétt að verða 2…og hef ekki sofið neitt síðan.. Sótti Gabríel, lagaði smá til yfir handboltanum og var bara að stússast almennt.. Fór svo að hitta Lilju mína yfir einum kaffibolla á Kaffitár og rölt í Kringlunni og fær hún öll knús ársins frá mér *KNÚS* *KNÚS* *KNÚS* Þykir svo vænt um þig krúsan mín og remember – let’s open up a restaurant in santa fe, ahhh..you know what I mean
Að öðru svo, við fengum að vita allar í morgun hvar við munum vinna í París.. Ég og Ýr verðum að vinna hjá Totem.. ég skal láta meðfylgjandi smá lýsingu á hvað það nákvæmlega er: (Totemfashion.com)
In 1992 Patrick Girault and Kuki de Salvertes joined forces to create their press and publicity agency Totem to promote designers with a different approach to fashion
Kuki de Salvertes
Thanks to his 20 years in the world of fashion at the side of Yamamoto, Moschino, Alaïa, Westwood and of his own artistic sense, Kuki de Salvertes decided to open a press office devoted to the most innovative and promising young designers.
”I looked at what existed, which was not much, so I looked towards the schools to find students and to help some to launch their brands”.
After three years at Totem ,being responsable for different designers and working on specific projects, Sebastien de Brito has joined Patrick Girault and Kuki de Salvertes at the head of the agency.
He is now coordinating along side Kuki de Salvertes the whole of the press and public relations at Totem. He particularly coordinates the mens fashion department.
Culture and values
-
- To discover the talents of tomorrow.
- To recognise the exceptional
- To advise and assist the designers’ development, in order to establish a brand name
Press relations
Apart from acting for confirmed designers Totem serves emerging talents such as:- A.F. Vandevorst
- Armand Basi
- Attachment
- Barcelona Showroom
- Benoit Méléard
- Bernhard Willhelm
- Christian Wijnants
- Dirk Shönberger
- Gieves
- Gilles Rosier
- Jose Castro
- Juun J.
- Jean-Charles de Castelbajac
- Kinimori Morishita
- Linda Farrow Vintage
- Marlies Dekkers
- Raf Simons
- Rogan
- Sinha Stanic
- TOGA
- Ute Ploier
- Veronique Branquinho
- Walter van Beirendonck
Each one of these designers have their own purely personal creativity,
totem puts into practice and synergizes their creative evolution:- Presentation of collections to the press
- Organisation of catwalk shows, some 50 a year in France and abroad
- Ensuring a strong press image, interviews, portraits, participation in artistic projects, introductions to well-known personalities etc.
- Presentation and collaboration on a daily basis with the National and International press
Instututional Fashion Press : Vogue, Harper’s Bazaar, W, Vanity Fair, Elle, Madame Figaro, Glamour, L’Officiel, Marie Claire, Cosmopolitan, Flair, GQ, GQ Style, Vogue Hommes International, Numéro, Numéro Hommes, L’Officiel Hommes, Arena, L’Uomo Vogue, Men’s Vogue …
Independent Fashion Press : ID, Pop, Dazed and Confused, Arena Homme +, V, V Man, Another Magazine, Another Man, Ten, Ten + men, Fantastic Man, Wonderland, Purple, Self-Service, Crash …
Professional Fashion Press : WWD, DNR, le Journal du Textile, Textil Wirtschaft …
General Press : NY Times, International Herald Tribune, Sunday Times, Libération, le Monde, le Figaro, The Observer,The Guardian, Die Zeit, Sueddeutsche Zeitung, La Repubblica, El Pais…
Permanent contacts with all fashion medias, fashion professionals and personalities (TF1, France 3, France 5, Arte, Pink TV, Canal + ,style.com, vogue.com, catwalking.com, la-couture.com, showstudio.comVona að þið hafið nennt að lesa þetta, því þetta er mjög interesting! Það sem við munum allavega vera að gera (skilst mér) er að stússast daginn út og inn, vinna á þessum stað þarsem öll collection frá þessum insane hönnuðum eru geymd, þannig að maður er innan um þennan fatnað allan daginn… Svo most importantly þá verðum við að vinna á tískusýningunum (sem verða margar því þetta eru fullt af hönnuðum), setja upp stóla og arrange lista, boðskort, eftirpartý og allur pakkinn!!!
Þannig að við fáum að komast inn á ógeðslega margar tískusýningar, sem er ekkert sjálfgefið, og erum bara ofan í öllu actioninu!!! Ég er mjög ánægð með þetta, hefði pínu fríkað út að vera sett inn á eitthvað studio þarsem ég kynni ekkert að gera…En já, ég er glöð ! Verður gaman ef maður verður að vinna á sýningum með td. Raf Simmons og Bernard Wilhelm!
Endum þetta á nokkrum myndum úr Spring Summer collectioninu hjá Bernard Wilhelm

Hér eru nokkrar myndir frá öðrum hönnuði frá Totem, Juun J. (Mér finnst þetta fáránlega flottar buxur!!!!)

Skoðið síðuna www.totemfashion.com – það eru alveg fáránlega mikið af flottu að skoða þar !!!
Ég held ég sé farin í háttinn..væri það ekki gáfulegt?
Erla þreytta skonsa
Hvar er nóttin mín?
January 24, 2008
Ég týndi bara heilli nóttu núna.. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer ekkert að sofa heila nótt vegna vinnu en metið mitt so far var að fara í rúmið rúmlega 6..
En klukkan er núna korter í 7 og á ennþá smávegis eftir að klára fyrir yfirferðina sem er.. já, á eftir!
Þetta er mjööög weird.. Ég er svo svefnþurfa manneskja almennt séð en ég held ég sé komin yfir erfiðasta hjallann núna. Mér finnst bara ekki tíma því að sofna núna kannski hálf átta og vakna rúmlega átta…held ég yrði bara þreyttari fyrir vikið.. Ég hleyp bara heim eftir yfirferðina og legg mig áður en ég fer á leikskólann í eitthvað viðtal.
Er semsagt búin að teikna allt, lita með trélitum (lærði af reynslu minni með tússliti nóttina fyrir síðustu yfirferðina)
—–Núna er klukkan 12 mínútur í átta og Gabríel vaknaður að horfa á barnaefni í sjónvarpinu, þarf að reyna að klára stöffið mitt….
spennó svona morgunblogg, huh ?
Wish me luck í yfirferðinni á eftir, ég vona að ég sofni ekki á stöffið mitt!!!
Erla
Jahérnahér
January 23, 2008
En sorglegt! (Ýtið á linkinn).. Veit ekki af hverju svosem…Bara skrýtið!
Hann var góður í Brokeback Mountain.. jahér, life goes on, kannski bara skrýtið að sjá svona “samtímafólk” vera að fara.. don’t know..
Er allavega enn að, hætt að skissa og vesenast í litaspjaldi en er núna í vandræðum með prjónaprufur osfrv. Vona bara að allt gangi vel í fyrramálið, sem er síðasta skiptið sem ég hitti kennarann fyrir yfirferðina á fimmtudaginn. Yikes! Wish me luck my babies!
Erla
ps. Ég lagði mig í dag…! Það er nú bara fréttnæmt! Fékk frið á milli 5 og 7 þegar ég kom heim úr skólanum og ég steinrotaðist.. það var yndislegt, enda alveg gjööörsamlega búin á því ![]()
Sjaldséðir eru nú hvítir hrafnar, né fegurðarblundir…
Chocolate Jesus
January 22, 2008
Ég ætla bara að byrja bloggið á þessu: Ég er að fara í yfirferð á fimmtudaginn og biðst velvirðingar á sambandsleysi sem mun eiga sér stað næstu tvo daga.Damn right, prjónacollectioninu er að ljúka og ég hef unnið mjög vel og samviskusamlega að þessu verkefni..Samt á ég alveg böns böns eftir en það er bara hressandi.. (Is it?) Er komin með svona heildarlúkk og pælingar en á eftir svona prjónadetail, þ.e. hvernig volume í garninu og hvaða garn og allt saman.. Mér finnst knitwear mjög heillandi og ég las mjög töff grein í Mogganum í gær um Vík Prjónsdóttir og ég mæli með að þið tjékkið á þessari síðu http://vikprjonsdottir.com/
Allt komið í panikk í Ráðhúsinu.. fór í tíu ellefu áðan eftir dinner hjá tengdó og á leiðinni út í bíl kom einhver fréttamaður frá stöð 2 held ég og spurði hvort ég hafi verið að fylgjast með málunum.. Ég flissaði einsog smástelpa og lagði á flótta út í bíl og sagði bara neeeei takk, það væri nú það fyndnasta af öllu… Ég að tala um pólitík í sjónvarpinu.. .BWAH!!! Það er margt sem ég hef vit á en Se-jettturinn hvað ég myndi missa kúlið í öllu sínu veldi að þykjast vita eitthvað betur. Cuz I don’t.. Og ég viðurkenni það fúslega.. Eina sem ég veit, var að ég fílaði Dag – mér fannst hann ungur og spönkí og eitthver kraftur í honum. Annars veit ég ekki..
Á við hrikalegt vandamál að stríða þessa dagana en það er enginn tími sem ég nýti jafn vel til að vinna í verkefnum mínum einsog seint seint á kvöldin.. Og þá meina ég að ég þarf gjörsamlega að pína mig í háttinn um 3 leytið á næturnar… þó ég sé algerlega stjörf í augunum að vinna á ljósaborðinu og að drepast í bakinu því ég er ekki með góða vinnuaðstöðu.. Þetta er harkan sex. Eins gott að komast í góða þjálfun fyrir París, vinna frá morgni til kvölds.. Hell yeah!
Mamma mín er að fara að halda fyrirlestur á morgun á einhverju læknaráði.. Hún og heimilislæknirinn okkar verða saman með fyrirlesturinn “Það sem röntgen ekki sér og resept ekki læknar” .. Sumsé langveikir sjúklingar sem ekkert er hægt að gera fyrir, einsog málið er með hana mömmu mína.. hún er búin að æfa sig og æfa og þetta verður mjög áhrifamikið held ég.. Þ.e. læknarnir vilja fá sjónarhorn sjúklings sem er búin að veltast út um allar trissur í heilbrigðiskerfinu og hvernig hún upplifði það… Margt neikvætt, örlítið jákvætt.Vorum einmitt að fatta það að það eru komin tíu ár núna í janúar síðan hún veiktist… It feels like forever! Til að byrja með var hún lögð inn þrisvar sinnum á sex daga millibili útaf verkjum, sjúkrabíll og kósí. þetta er búið að vera langt ferðalag og skrýtið að hugsa til þess hvað við höfum öll gengið í gegnum, sem ótrúlega meðvirk fjölskylda.
Vóts. Hef greinilega nóg um þetta að segja
Er allavega mjög stolt af henni að gera þetta, hún er feimin við að koma fram fyrir nokkur hundruð lækna (skiljanlega) en þetta er hennar persónulega saga sem enginn getur sagt nema hún….
Hmm.. Ég bara missti einbeitinguna hvað ég ætlaði að skrifa… Ætla að taka úr þvottavélinni, ganga frá fötum fyrir morgundaginn og preppa óveðursbaráttuna að koma Gabríel í leikskólann fótgangandi… Er ekki spáð stormi í nótt og á morgun? Wish us luck !!!Jæja.. High five fyrir hvern sem nennti að lesa alla þessa ræðu, fimman berst í pósti fyrir föstudag – skiljið eftir nafn ..mwahhaha…
Ein góð mynd af Gabríel í effecta stuði í photobooth á föstudaginn, með skeggið fyndna og svo krewið, the MUTTER UND SEINE KLEINE BEIBÍ
she walks these hills in a long, black veil…
January 18, 2008


Vivienne Westwood skór…Hver vill?
January 16, 2008
Snjókornin falla við hvert skref
January 16, 2008
Já, það er aldeilis að það er huggulegt að það sé bara snjór! Finnst þetta svo hrikalega kósí, nema þegar það þarf að arka með spaðann á leikskólann en það hefur gengið svona lala…Jónas þurfti nú að halda á honum í gær, komum kerrunni ekki neitt..
Gabríel er ábyggilega óheppnasta barn sem ég þekki..Á laugardaginn byrjaði að leka úr öðru eyranu, á sunnudeginum dripplaði nánast úr því en hann var bara heima á laugardeginum því hann var eitthvað slapplegur í þokkabót.. Svo hefur haldið áfram að leka og hann svaf mjög illa og var endalaust að vakna og bara hrikalega lítill eitthvað… Svo hringdi leikskólinn í gær þegar ég var í saumatíma og þá hafði hann verið nánast óhuggandi meira og minna allan daginn og alveg augljóst að honum liði illa í eyranu… Ég var sem betur fer búin að panta tíma hjá barnalækni á Domus Medica um kvöldið til að skoða eyrað þannig að ég fékk mömmu til að koma og sækja mig og Gabríel og fórum svo til læknis.. Læknirinn sagði að hann væri með eyrnabólgu útaf….einhverju sem ég man ekki… en hann er semsagt kominn á sýklalyf, litla skinnið… En hann er ekki með hita eða neitt svoleiðis. Leyfði honum samt að sofa út í morgun og tókum því rólega, ég sjálf verð svo slöpp af pensilíni að ég vildi sjá hvernig hann væri í byrjun dags… Svo var hann bara hress þannig að við röltum í gegnum snjóskaflana (festist reyndar á gangbraut, frekar asnaleg) og kíktum á leikskólann og hann bara ofur hress að fara út í snjóinn að leika sér…
Er svo búin að ætla að vera brjálæðislega dugleg í dag en það hefur ekki beint orðið úr því..Er svo þreytt og skrýtin.. Hélt ég væri að verða veik í gærkvöldi og er ennþá óviss.
Þannig er nú ástandið á þessu heimili…
Ég er búin að kaupa flugmiðann til Parísar….úfff, þetta er orðið frekar raunverulegt!!! Erum að skoða íbúðir á fullu (eða meira hinar stelpurnar) og komnar með eina sem okkur lýst öllum mjög vel á..fáum að vita meira seinna í dag…
Þetta verður algert ævintýri krakkar mínir! parís? 3 vikur? 7 stelpur í einni íbúð? Þetta verður VÆGAST sagt ævintýri
Allavega verða margar sögur í boði þegar ég kem heim.. Fer út snemma morguns 9.febrúar og kem heim 3.mars… Hinar stelpurnar verða viku í viðbót í fríi en það er ekki option í mínum huga ! Wonder why!
Þannig er nú það í bili…. Vona að allir séu hressir með snjóinn, þetta er svo hreinsandi og hlýlegt!!!
Erla
Amazing. Wonderful. Allur pakkinn
January 10, 2008
Jæja þá.. Það er aldeilis hvað þessi hversdagslegi fimmtudagur bar merkilega skemmtilega hluti í för með sér!Án þess að halda spennunni mikið lengur þá er ég…. að… fara … til … PARÍSAR !!! Oh – yes – I – am !!! Við Jónas veltum þessu fyrir okkur í kvöld eftir að mamma og pabbi buðu fram hjálp sína við að koma minns til Paris… Gabríels-og peningalega og ég hringdi í Lindu, sem er yfir öllu í LHÍ, og spurði hvort það væri enn hægt að komast að og það var ekkert mál… Erum við að grínast hvað þetta er skemmtilegt???Myndi þá fara út 9.febrúar, laugardaginn og koma heim 3-4.mars, eitthvað svoleiðis. Erum við að RÆÐA EITTHVAÐ um það að ég mun halda uppá 25 ára afmælið mitt, þann 25.febrúar, í PARÍS Á FASHION WEEK??? Það verður afmæli to remember!!!Ég veit nú samt að þetta verður alls ekki auðvelt, að fara bara frá drengjunum mínum en þetta er once in a lifetime tækifæri og þeir lifa alveg af án mín… úff..langar eiginlega ekkert að hugsa um þann part núna… Verður líklegast alltof mikið að gera að vinna úti til að setjast niður og missa sig úr heimþrá! :,,,/HVERSU COOL SAMT??!! Ég er allavega að missa mig, svona pínkupons.. Bitnar svolítið á heimavinnu morgundagsins, ég get ekki mikið einbeitt mér… Svo fyndið að ég var ALVEG búin að afskrifa að fara út fyrir LÖÖÖÖNgu síðan og svo bara alltíeinu…er ég að fara að vinna í einhverju tískuhúsi í næsta mánuði !!!WEEHOO!!!Erlaps. afmælisgjafir eru vel þegnar í peningaformi, mwahahahahahahahaha….eða frjáls framlög…alveg sama hvað !!