Albie, the racist dragon
February 22, 2008
Er ekki komin að þessari formlegu athöfn, sem er sú að blögha. Það er rétt, blögh er franska útgáfan af bloggi, fyrir ykkur sveitapakkið heima á klaka.. Leggið gífurlega áherslu á “uuöööö” í blöghi og þá eruði kúl.
Neineienei, allt í gríni. Ég er ekki orðin innfætt parísarsnobbógeð.. ég er sami lúðinn, sami lúðinn og þið þekkið best.. París er ekki að “get to me” á þann hátt, mér finnst þessir ,,innfæddu” ekkert alltof töff (Nú er ég viss um að nokkrar sambýliskonur mínar eru mjööög ósammála mér), það er nú bara þannig… Er allavega ekki komin í röndótta peysu með klút og alpahúfu með baguette að syngja “Fu du faux faux” eða neitt. Bara svona til að hafa hlutina á hreinu..Reyndar hef ég fengið mér baguette einu sinni, bara eina sneið.. En ekkert croisannt..og hvað þá eitthvað meira franskt..Fékk einmitt sms frá systur minni um daginn…Goes a little something like this
“Heey baby! Sakn sakn!hvernig er…er það bara rauðvín, ostar og sniglar??”
Svarið var:
“HAHAHAHA.Meira svona Pepsi Max, Microwave dinners og nammi”
Það er ,,Fabjúlöss” að vera í París einsog þið sjáið.
..Þið kannski getið séð á orðum mínum að þreyta heltekur kvöld mín og hugsanir…svefngalsi er orðinn svo reglulegt fyrirbæri seint á kvöldin og maður situr í súrsætu hláturskasti yfir einhverju, sem síðar meir, er ekkert alltof hrikalega fyndið.. er allavega þreytt núna
Vinnan er alltaf vinna… erum búnar um 9 leytið á kvöldin sem er algerlega glatað, allir súpermarkaðir lokaðir og maður getur ósköp lítið gert við líf sitt…hehe…nema kúrað, reynt að komast á netið og horfa á whose line is it anyway í tölvunni. Ekki amalegt…ég elska kúrlíf, það er bara mitt lifibrauð. Ég er foringinn í þessum heimi! Ég og Jónas allavega..og Gabríel, þegar hann nennir því…
Ætlaði bara að minnast á það að hún Rakel Sólrós, vinnufélagi minn með meiru, hefur komið mér inn á Flight of the Conchords… þetta er svo hriiikalega fyndið og súrt að ég hef ekki munað aðra eins snilld uppá síðkastið..Þetta er bara einsog þegar ég uppgötvaði Tenacious D á sínum tíma! Sem var..GAMAN!
Ég mæli með og segi svo – að þið kíkið á youtube og skemmtið ykkur að horfa á þessi clip…því þetta er bölvuð snilld
Vinna á morgun, vinna á sunnudag, vinna alla daga fram á föstudag- alger geðveiki hér framundan, enda tískuvikan ógurlega byrjuð í dag og spennan farin að komast í hús, það sást á hörku rifrildi milli aðal hönnuðina í morgun, við rakel þorðum varla að líta upp í ótta við að lenda í einhverju bulli..
Mæli einmitt með að lesa bloggið hennar, linkurinn er hér til hægri..hún bloggar daglega, frekar ítarlega einmitt, um daginn og tilveruna..svo heppilega vill til að við eigum 99% alveg eins daga… þannig að þegar ég er ekki að blogga, þá er hægt að tjékka á stöðunni með okkur á hennar síðu
Ætla að lúlla….það er nú eins gott að nýta þessar indælu rólyndisstundir fyrir svefn fyrir mestu geðveikina… Sýningin er btw á föstudaginn 29.febrúar…
Erla, the working lady
Ps.semáafmæliámánudaginnEKKIGLEYMAMÉR!
Sunnudagur til..sybbnis?
February 17, 2008
Jæja, það er kannski kominn tími á að maður harki af sér að blogga eitthvað! Það hefur bara verið svoleiðis að þegar ég kem heim úr vinnunni, mis seint, að þá rétt yrði ég á hinar stelpurnar, jafnvel kíki á e-mailið mitt ef netið leyfir mér og missi svo meðvitund (stundum óvart) upp í rúmi! Ég er semsagt…þreee-heeeyyyyttttt…
Vinnudagarnir eru sumsé frá 10-20 (eða 21) en það var alger lúxus að við fengum að mæta kl.12 í dag, fyrst það var nú sunnudagur..Vorum til 20.00 sem var víst..líka lúxus… Ekkert helgarfrí hjá Rue du Mail! Ég held seriously að þetta fólk sem vinnur þarna eigi bara gjörsamlega ekkert líf… þau vinna alla daga, allar helgar, allt árið og gerir bara ekkert… Ég er svona að fá smá efasemdir um þetta allt saman, þetta er mjög ópraktískt og erfitt fjölskyldulega séð, og maður þarf að vera ALGER tough guy og ákveðinn og 100% að gefa sig í þetta allt saman.. og ég bara..held ég sé ekki sú týpa! Ég er bara svona að spá.. ekkert að ákveða…þið vitið, maður þarf að hugsa um hlutina!
Námið er nefnilega rosalega skemmtilegt og krefjandi…en svo þegar það er búið, what then? Á maður að skella sér til París? Vinna alla daga og allar helgar og klára alla orkuna og missa af Gabríel að vaxa og dafna? Ég held nú síður…
Á maður að vinna í fatabúð á Íslandi og gera ekkert sem tengist fatahönnun at all ? Ég veit ekki..
Draumurinn hjá mér er nú meira þannig að mig langar til að opna lítið stúdio, hanna eitthvað brjálað stuff, með allskyns hönnunum ekki bara föt…kannski skartgripi og fylgihluti. Jafnvel töskur og skó? Kannski bjóða uppá tattoo og geisladiska? Tíhíhí.
Svo vinna on the side að syngja með einhverju rosalega skemmtilegu bandi, gera eitthvað á mínum eigin forsendum og allt það.
Þetta hljómar mikið betur…Ahhhh… ☺
Fékk skilaboð frá pabba gamla að við verðum með gigg á Domo, 1.maí … HVERSU ÖFLUGT ? Verða Bítlalög í djassútsetningum.. Bandið samanstendur af sumsé mér, pabba, erik, kjartan valdemars, robbi á bassa og snorra sig á trompet..
Ég heimta fjöldamætingu og allsherjar rosastuð.. Verð einmitt komin í sumarfrí þá! How good is that..
Ég hef ekki fundið fyrir neinni djammþörf hér í París… Eiginlega bara andstæðu þess! Ég segi svona.. það er nú komin næstum því tvö ár síðan síðasta djamm átti sér stað og ég hélt að kannski myndi parís og félagsskapurinn stríða mér eitthvað í hausnum…en það hefur svo sannarlega ekki gerst.. ég þamba bara mitt pepsi max og óska stúlkunum góðs stuðs ef þær fara út á lífið því ég hreinlega nenni ekki að hanga inni á einhverjum klúbb/pöbb/skemmtistað að reyna að vera eitthvað sem ég er ekki..ég er kúridýr og það er bara heilagur sannleikur sem maður á að lifa eftir. Takk kærlega fyrir mig!
Hahahaha…er þetta steiktasta blogg í sögunni?
Sakna prinsanna minna óþægilega mikið, fékk einmitt myndir af gullfallega barninu mínu í gegnum e-mail og ég þurfti bara að harka af mér. Ég vissi að hann væri sætur en váts, hvað hann er mikið krútt! Þeir feðgarnir hafa það rosalega gott saman, mér skilst á mömmu minni að drengurinn hafi ekki einu sinni spurt eftir mér…hehehe… ég vona að það sé satt en ég varð samt svona smá “huh?er ég gone-a-ble?” Segi svona…mwahha. Það verður gaman að hitta þá aftur..eftir tvær vikur einmitt á morgun!
Svo á ég afmæli á mánudaginn eftir viku…Stórafmæli hreint út sagt, 25 ára! Ég sé fyrir mér að afmælisdagurinn minn verði vinna frá morgni til kvölds og einhvern tímann seint seint um kvöldið verði mér boðin upp á Winnie the Pooh köku sem við Rakel sáum í búðinni um daginn.. Kannski verð ég búin að fá falleg afmælis SMS eða jafnvel símtöl ef ég get svarað þeim..Svo með magann hálfmeltan af köku að leggjast uppí rúm, ætla í tölvuna en steinsofna áður en að því kemur…
Þetta verður allavega dagur til að muna eftir, hehehe ☺
Draumurinn væri nú að fá frí allan daginn, mæta í Euro Disney snemma að morgni og eyða öllum deginum í tryllitækjum…hehehe. Það væri öflugt en líkurnar á því eru gjörsamlega engar..
Shiz, ég er orðin svo þreytt, ætla að henda mér í sturtu og fara svo í bólið..samt er klukkan bara tíu….*hrollur* Aldeilis stuð
Verið dugleg að commenta, it’s so fun !!!
Erla, the parisian cuddlefanatic!
Ps. Lilja – ÉG. VAR. AÐ. SAUMA. Á. IÐNAÐARVÉL. ITS TRUE ! ÉG ! Þú myndir ekki “nehhhhhhh”-a yfir mér núna, oh no you wouldn’t! Hehehe…
Fyrsti vinnudagurinn
February 12, 2008
Ah,oui oui.. Fyrsta vinnudeginum er lokið og jah, þvílík þreyta og örmögnun. Við mættum kl.10 en okkur var sagt að við ættum að koma aftur kl.12 því þá kæmi Jan aftur, sem er okkar maður. Röltum þá um hverfið og kíktum inn í Les Halles sem er underground verslunarmiðstöð..Keypti mér latte vanille á Starbucks (NAMMI) og beyglu með kjúkling og sesar salat sósu, sem er náttúrulega bara það versta sem ég hef fengið hér í París..Fyrsta kvöldið fékk ég með sesar salat en sósan bragðaðist bara einsog það hefði dottið fiskur ofan í sósuna eða eitthvað…og svo fékk ég það aftur á Starbucks þannig að standardinn fyrir sesar sósuna er bara hrikalegur. Þið vitið það þá af biturri reynslu minni !
Mættum svo aftur kl.12 og fyrsta verkefni dagsins var að púsla saman 4 ál skápum úr Ikea, fyrir saumakonurnar.. Sem var frekar mikið rugl og tók slatta tíma…Fórum svo að taka upp mynstur eftir prufum sem Kasú (japani sem vinnur við að sníða á borðinu hliðná okkur) var að vinna eftir… Svo vorum við í broderingum, þ.e. að vinna fyrir dömuna sem sér um þann pakka…. fékk algert horror snið sem hafði farið í “lagfæringu” þ.e. upprunalega sniðið, svo var annað snið ofan á því og svo var búið að krota í það og ég átti að taka upp þessa öööörfáu millimetra sem vantaði uppá og það tók alltof langan tíma! Svo vorum við bara að gera hitt og þetta…..
Samt var mjög svalt að aðalhönnuðurinn, Martine Sitborne, er bara með borðið sitt ská á móti okkur og er bara around, þ.e. allir hönnuðir, assistant director, producer og saumakonurnar og allur pakkinn er inní sama rýminu.. Mikið flæði og sköpun í gangi!! Martine er heví kúl…orðin ábyggilega rúmlega fimmtug kvensan og bara mega töff.
Kláruðum um 21.30 og vorum alveg dauðar á því en eftir metro ferðina færðist einhver kraftur í okkur Rakel og við röltum að kíkja á Notre Dame sem var frekar nice….
Hér eru símamyndir dagsins!
Notre Dame skiltið
Helvíti mögnuð
Bjútífúl
Frekar fyndið hvað allir leggja brjálæðislega nálægt hvor öðrum
KNÚS og verið dugleg að commenta..it makes me feel like home :,)
Erla
Bleh
February 11, 2008
Jæja, netið er ekki alveg uppá sitt besta þannig að ég ætla bara að henda saman bloggi í word og vonandi kemst ég í að setja það inn á síðuna soon. (Mánudagskvöld kl.22!)
Fyrsti dagurinn var ekki alveg as expected, við mættum tímanlega á Rue du Mail númer 5 og hittum þar Jan, sem er fabjúlösslí dressed gay man, sem átti að taka á móti okkur – en hann var þá nýbúinn að senda Lindu sem er yfir fatahönnuninni e-mail sem tjáði slíkt að við ættum ekki að mæta í dag.. Þannig að hann benti okkur á 2 götumarkaði að kíkja á sem voru reyndar út í sitthvoru rassgatinu… Við töltum til baka í íbúðina og tjékkuðum á Birtu, sem á ekki að byrja að vinna fyrren á fimmtudag og töltum allar á Rue du Rivoli, sem er eins konar Oxford street nema bara..í París.. Stelpurnar versluðu eitthvað stuð en ég keypti bara eina hettupeysu og bol í H&M á hann Gabríel, bæði Lightning McQueen, held hann verði mjög ánægður með það !!
Svo fórum ég, Rakel og Birta á götumarkaðina en Laufey fór heim, enda búin að æla alla nóttina og var ekki að höndla neitt – annar var mjög shady, við höldum að það hafi verið í 18.hverfi sem er einskonar ghetto sem okkur var ráðlagt að fara..EKKI í .. Þannig að við hlupum um markaðinn og oní Metróið aftur og kíktum í 20.hverfið en þar var mikið stærri götumarkaður..fundum ekkert, löbbuðum inní glataða verslunarmiðstöð og svo bara metro aftur heim… Alveg búnar á því eftir frekar mikinn labbidag. Stoppuðum í súpermarkaðinum á leiðinni heim og ég keypti mér í ávaxtasalat og kippu af Pepsi Max (MWAHAHA)
Henti mér uppí rúmið og hélt áfram að horfa á We Own the Night, sem ég hafði byrjað á í ofurþreytu kvöldið áður en þá kom Tia og við lágum í kleinu saman með sitthvort headphonið og horfðum á þessa, annars MJÖG lélegu bíómynd, í rólegheitunum.. Svo steinsofnaði ég eftir að hún var búin, það var mjög spes…ekki að þurfa að hugsa um neitt nema sjálfan sig og ekkert að gera… Sakna þess nú soldið mikið! (En ég skal EKKI væla) Horfðum svo flestar saman á Brokeback Mountain á frönsku, sem var fyndin og súrrealísk upplifun. Giska á hvað væri verið að segja og svona.. Ekki skemmdi þegar frönsku voice over leikararnir urðu reiðir og voru að öskra og rífast og svona..það var classic
París er ótrúlega falleg.. Veit að þetta hefur ábyggilega verið sagt frekar oft en ég er oft bara “djííííses kræst”.. Fólkið hérna er svo hipp og kúl að það er bara fáránlegt, mér líður einsog eskimóa lúða sem kann ekki að klæða sig.. En það eru nú bara aðallega samkynhneigðu gæjarnir sem eru almennilega til hafðir.. Það vantar þá ekki hér, enda íbúðin í gay hverfi..
Spáið bara í því að ef ég labba í vinnuna þá labba ég framhjá a)Starbucks b)Labba á aðal verlsunargötunni c)Louvre safninu d)Marc Jacobs og Givenchy showroom (veit að það er minna merkilegra en það minnir mann bara á hvað þetta er mikil tískuborg)
..Það er nú ekkert svo shabby! Toppar allavega að labba framhjá nóatúns búð, og mótorhjólabúð..hehe…en ég kvarta EKKI. (ég er sko búin að taka rosalegar ákvarðanir um hugsunahátt minn heim)
Ég held samt að ég myndi ekki vilja búa hér til lengdar. Væri gaman að vera hérna í svona 1 ár ef maður yrði almennilega heppinn með staðsetningu (Enda með Gabríel) og peningamál en til langtíma litið er Ísland ansi kósí staður að hugsa heim. Þannig er nú það..Ætli ég semji ekki óð til Íslands þegar líður á ferðina…hehehe..
Stelpurnar eru mjög auðveldar í sambúð… Við erum 5 sem sofum hérna uppi á svefnloftinu, ég og Guðrún Tara erum saman með rúm en hinar eru einar á dýnum og teppum osfrv..Svo eru 2 niðri í stofu í svefnsófa..
Vorum einmitt að frétta að Guðrún, sem er að vinna hjá Givenchy, er frá 10-12 á miðnætti…það er brútal vinnutími..held hún verði ansi búin á því greyið. Sjáum samt til hvað er að gerast þegar vinnan sjálf byrjar hjá mér á morgun..Skilst að við verðum eitthvað að vinna með Lindu (Sem vinnur einmitt hjá Rue du Mail og kemur á miðvikudaginn) í printi og svona.. Það verður allavega auðveldara, góð hækja til að koma sér á gott ról þegar hún fer aftur heim.
Jæja, so far…so good.. hlakka til að byrja í vinnunni, þessi vinnustaður virkaði mjög afslappaður, var frekar lítill og kósí og ekkert snobb í gangi .. Þannig að það er mjöög gott.
Ætla að sjá til hvort ég geti fært tölvuna á “hot spot” hérna uppi á svefnloftinu og komið þessu á netið..annars geri ég það bara síðar..
Parisian luv,
Erla madamouselle
Ps. ætla að reyna að setja inn myndir úr símanum
ég og laufey hjá frænku ýr, nýkomnar til parís
Guðrún var nýbúin að kaupa sér…DÝRA Soniu Rykiel skó ..með gullhæl góðan daginn
París í stuði
Metro party
Notre Dame bakvið trén
Moi y Notre Dame
Starbucks, að eilífu amen
Hurðin á vinnustaðinum
Rue du Mail (Rú dö mæ) hehe
París París
February 10, 2008
Jæja, þá er maður kominn í París París… Við erum með mest unstable network connection í heimi þannig að það er algert happaglappa að maður komist inná netið.. Við sitjum hérna 3 saman með tölvurnar í fanginu á eina staðinum sem fæst ÖRlítið connection sem er einmitt upp í rúminu hjá Rakel… Very funny
Ég nenni ekkia ð koma með ferðasöguna alveg strax, ég er nett þreytt og ætla að chilla before the big day…
Bið bara kærlega að heilsa og mér farnast VEL hér í faaalleeeggguuuu parís…nema ég sakna strákanna minna óþægilega mikið en ég reyni að leiða það hjá mér þegar kemur að þeim stundum í deginum!!!!
LOTSALUV
Erla
Því ég flýýýýg,hátt í loooftið
February 8, 2008
Ég heiti Erla. Ég fer ekki oft til útlanda en þegar ég fer, þá er STORMUR ! Hvað er málið? eruði að gera grín? Fólk stendur einfaldlega ekki í fæturnar úti við og allt flug liggur niðri sem átti að fara fyrr í kvöld… Þetta er bara my luck..Var að segja við Jónas, að sennilega væri þetta eitthvað æðra vald sem væri að segja mér að ég ætti nú alls ekki að fara til Parísar! Samt ekki…
Er eiginlega alveg búin að pakka, þarf að hendast í sturtu og klára að henda nokkrum smáhlutum ofan í tösku.. Þá held ég að maður sé bara good to go… Samt algert sköll að þurfa að vakna í nótt, sjaldan verð ég jafn mygluð og eftir hálfa nótt af svefni..Ef ég sofna yfir höfuð.. Við færðum rúmið hans Gabríels inn til okkar Jónasar, svo að það verði nú kósí hjá þeim feðgunum á meðan ég er úti… Höndlaði ekki að svæfa hann, var farin að væla þegar ég kyssti hann góða nótt og grét nokkrum vel völdum tárum þegar ég kom fram… En svo var það bara búið í bili.. Á maður ekki að viðurkenna veikleika sinn? Hehehe…
Keypti mér fallegan gsm í gær.. Hann er mjög fallegur, bleikur og yndislegur…Og hringingin er engin önnur en “anyone else but you” og ég gleðst yfir hverju símtali, langar helst bara ekkert að svara, mwahahha

Jæja, Jónas er kominn í ruglið að taka myndir af mér með símanum mínum — við viljum það nú ekki núna, maður er myglaður ! !! !
Ég blogga næst í París… HAHAHAHAHAHAHAh… wish me luck !!!
Erla, veðurguð
amputees with stamp collection ?
February 5, 2008
Jæja, er ekki kominn tími á ferska færslu…
Ósköp líður nú hratt að þessari blessuðu Parísar ferð… fer á föstudagsnótt… er einhver að kaupa það ? Það er búið að vera svo lengi 5 vikur..mánuður…nokkrar vikur..og núna er þetta bara nokkrir dagar þangað til ég verð á fullu í fransinu.. Haldiði að það sé. Taugarnar eru ansi strekktar þessa dagana og ég þarf að taka á mínum stóra til að halda, einfaldlega, kúlinu… Sem er óheyrilega mikið að sjálfsögðu, en þið skiljið…
Fékk reyndar að vita í dag að Totem sýningarnar eru snemma í tískuvikunni og þegar þeim sýningum er lokið, þá er 99% líklegt að vinnu minni sé lokið! Þannig að vonandi fæ ég nokkra daga þarna áður en ég fer aftur heim, kíkja í H&M og versla á Gabríel og svona. Það væri nú ekki leiðinlegt.. Kannski upplifa París einfaldlega.. Það væri nú ekki sjabbí!
Annars var helgin frekar viðburðarlítil athafnalega séð…nema ég fór tvisvar í bíó og einu sinni í leikhús.. Þvílíkt afrek. Fór á föstudagskvöldinu með Jónasi, Lilju og Arnari á Sweeney Todd og hún vaaar…mjahhhhh..hún var ágæt! Ekki jafn BILUÐ og ég var búin að reikna með (Tim Burton, halló?) en mér leiddist ekki alveg … Mundi bara þegar myndin var byrjuð af hverju ég dó úr leiðindum í íslensku óperunni þegar ég sat þar kasólétt með mömmu minni… mér finnst tónlistin svo leiðinleg! Og Johnny Depp er nú ýmislegt greyið en almennilegur söngvari er hann nú ekki… né Helena Bonham Carter.. Því miður. En eins og ég segi, mér leiddist ekki, við vorum í lúxus salnum og það var algert æði enda 16 stiga frost úti og algert ógeð. Stórskemmtileg og blóðug pæling með söguna en já..ég þoli ekki lögin (Reyndar voru sum frekar kúl en í heildina séð, njahhhh)
EN! Lúkkið á myndinni var æði!!! Tim Burtonish og fötin voru bara…crazy.. Einn jakki sem Benjamin Barker (segist með cockney hreim) var í, ég hreinlega urraði af reiði að eiga hann ekki
Svo fór ég á sunnudeginum, mjög óvænt, á Skilaboðaskjóðuna með mömmu Jónasar og Helenu systur hans og Gabríel auðvitað.. Það var algert æææææði, djöfull skemmti ég mér vel og Gabríel líka ! Sátum bæði dolfallin yfir nátttröllinu, hlógum að dvergunum sem hentust til og frá með bumburnar útí loftið og tókum andköf á sama tímanum yfir ýmsum atriðum
Hehehehe.. Ég fílaði þessa sýningu mjööög vel
Svo seinna á sunnudagskvöldinu fór ég í “stelpubíó” með mömmu og Unu..þvílíkt failure…fórum á Charlie Wilson’s War og vááá hvað hún var leiðinleg! HAHAHAHAHAHA…er ég svona neikvæð? Nei! Hún var bara leiðinleg! Philip Seymor Hoffman var sá eini sem ég skemmti mér yfir
Já, þannig er nú það…Annað hvort bloggar maður ekkert eða kemur með met færslur hægri,vinstri!
Nóg er að snúast um fyrir París…er að reyna að bóka hostel fyrir okkur fyrstu nóttina enda fáum við íbúðina ekki fyrr en á sunnudeginum. Svo er bara…stússast..þarf að kaupa ferðatryggingu fyrir fartölvuna mína, kaupa ýmsa smáhluti til að taka með út, þvo þvott, finna föt, pakka, stressast, redda peningum osfrv osfrv…. Pæling að taka upp smá jóga á síðustu dögunum…
Já og svo ætla ég að kaupa mér nýjan farsíma á morgun! Bleikan, mega sætan.. síminn sem ég fékk núna síðast er algert sköll, deyr endalaust úr batterísleysi og ég þarf að vera með endingagóðan síma þarna úti og jah, bara svona almennt!
Yippiieeee!
Whohhohh, I’m sticking with you.. Juno soundtrackið rúlar ennþá feitast af öllu sem ég hlusta á þessa dagana.
Jæja, ætla að gera eitthvað uppbyggilegt. Horfa á Highschool Reunion td. hahahahahahahahahahhah*grátur*hahahaha…
![]()
Erla Francois lu Baguette merde!

Anyone else but you
February 1, 2008
You’re a part time lover and a full time friend
The monkey on you’re back is the latest trend
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
Here is the church and here is the steeple
We sure are cute for two ugly people
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
We both have shiny happy fits of rage
I want more fans, you want more stage
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
You are always trying to keep it real
I’m in love with how you feel
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
I kiss you on the brain in the shadow of a train
I kiss you all starry eyed, my body’s swinging from side to side
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
The pebbles forgive me, the trees forgive me
So why can’t, you forgive me?
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
Du du du du du du du du
Du du du du du du du du
I don’t see what anyone can see,
In anyone else but you
(Styttri útgáfa í myndinni en lengri með Mouldy Peaches)
Þetta er einfaldlega mannbætandi — skemmtandi og yndislegt lag!!!
Þeir sem eru ekki búnir að sjá Juno… DO IT ALREADY !!! Soundtrackið hljómar hér á heimilinu okkar og dýrkum það öll saman..Frekar fyndið
Erum að fara á Sweeny Todd eftir rúmt korter — Lilja ætlar að bjóða mér í afmælispakka í Lúxusinn en karlarnir okkar koma samt með! Freeekar nice! Hlakka til að kúra í leðursófanum og horfa á söng-timburton-johnny depp mynd !!!
Vika þangað til ég sit í paranoju kasti að pakka og gráta til skiptis? Hver vill bjóða fram áfallahjálp in advance.. Mwahaha…
E.Todd, the buther of Paris















