reykur yfir vatninu
April 27, 2008
fyrsta lagið sem ég pikkaði upp á bassann, þegar ég var… 13 ára?
þetta er einfaldlega bara ekki hægt.
Ian Gillan ER bara EKKI HÆGT.
Hvernig er þetta hægt?
Á maður að fara sér hægt?
All the questions … !!!
Apótekið kl.21
April 4, 2008
Dior homme
April 4, 2008
Það er svo sjaldan sem ég finn falleg föt fyrir karlmenn að þið gætuð ekki trúað því.. En í google-partýi mínu núna áðan datt ég inn á Dior Homme línuna og ég get svarið að annað eins flottheit eru ekki til í sögunni… Látum bara myndirnar tala sínu máli…




En ég er alltaf devoted Junya Watanabe karla-sem og kvenfatnaðarins… I WONDER WHY?!?!






En að lokum, dýrka dýrka dýrka ég Aitor Throup… Allt sem hefur komið frá þessum ööörlítið eldri manni en ég, er bara fucking meistaraverk. Já, ég blótaði — I’m making a point here people!



Hef ábyggilega oftar en einu sinni bloggað um þennan gaur.Svo er hann svo klár að teikna líka!


Og svo prinsinn sjálfur

LATER. E
Paint it black
April 1, 2008
Góðan daginn!
Er ekki almenn kurteisi að bloggskrifa allavega, jah, einu sinni í mánuði eða eitthvað? Myndi nú halda það, Mwa-Hwa-Hwa! (Breskur uppstéttarhlátur)
Lítið að frétta héðan. Skólinn kominn á ról aftur og er í kúrs sem heitir því blunt nafni “Samkeppni” eða já, competition..Erum semsagt “í keppni” (HAHA) að búa til haust-vetur ‘09 collection fyrir fyrirtæki, undir ákveðnum leiðbeiningum og reglum og þema. Það gengur ágætlega hjá mér, er með pönk/frelsis/stencil/street/rock þema, sem ég er hrikalega ánægð með.. Þemað sem við fengum semsagt var “FREEDOM, Party Wear, frjálslegt” .. Tók spes vinkil á málið, ekki verra! Hef verið að grandskoða myndir af gömlu rokkurunum, þá aðallega Rolling Stones og David Bowie og mikill da-jöööfulli hafa þeir verið hot stuff í gamla daga! Allavega get ég ímyndað mér að þetta hafi bara verið crazy tímabil! Hvað þá Ziggy Stardust, góðan daginn.




Hressandi týpur.
Annars var ég nú bara veik um helgina, frekar glatað og leiðinlegt… For samt á föstudagskvöldinu með jónasi á Kommúnuna sem var alveg ógeðslega fyndið og skemmtilegt – jafnvel það skemmtilegasta sem ég hef séð lengi lengi…
Var að panta einmitt miða á Sólarferð á laugardagskvöldið nk. það verður vonandi rosa stuð !
Jæja, ég hélt ég hefði eitthvað magnað að segja…En svo virðist ekki vera…
Læt þessu lokið með ljósmynd af því sem ég hef hlustað nánast stanslaust á síðustu dagana..
Stay well! ERla

