The beauty of it all
May 31, 2008
Átti hið rólegasta föstudagskvöld í sögunni. Var heila eilífð að svæfa Gabríel því við spjölluðum svo mikið og hann var svo fyndinn að ég tímdi ekki að missa hann í svefnheiminn ![]()
Trítlaði þegar hann var þó sofnaður upp í stofu, kveikti á kertum og tók nokkrar góðar hugleiðslu og yoga æfingar..Settist svo við píanóið og spilaði og söng í nokkra klukkutíma…Fékk margar skemmtilegar hugmyndir að lögum sem verður skemmtilegt að taka á tónleikum…
Las smá um zen búddisma og horfði svo á lokaþáttinn í Lost.. ANSI gott kvöld bara !!!
Í dag er hin formlega útskrift LHÍ nema, við Gabríel ætlum í Borgarleikhúsið og fylgjast með Jónasi taka við plaggi eða hvernig svo sem það verður gert..Svo verður veisla í Mosó, það verður bara kósí og gaman..
Er bíó sjúk þessa dagana…langar svo á indiana jones, iron man, einhverjar stelpumyndir og bara BLAH…hehe.. Muniði eftir því þegar það kostaði 500 kjéll í bíó? Þá voru tímarnir góðir… Sussshhh!!
Sushi?
Maybe?
No?
Yes?
ER**
I still have last night in my body..David..
May 30, 2008
Örmögnun plús. Er búin að stússast í íbúðinni í allan dag, búin að mála eina umferð á loftunum (Þökk sé yndislega bróður mínum) og ákvað lit á veggjunum sem og lit í eldhúsinu. Ætla að hafa þessar 15 litlu eldhússkúffur sem ég er með í tveim litum, svolítið appelsínugulum og brúnrauðum einhvern veginn. Ah…set bara inn myndir þegar ég er búin með það en það verður smá svona “uuumpfh” .. Segist með Elvis hreim.
Kvöldið verður rólegt, sem og helgin mín þarsem ég er með Gabríel minn fram á miðvikudag þegar ferðinni verður haldið til Póllands.. dadadadadaaa..ævintýri enn gerast.
Ja,lífið er undarlegt stundum. Jahér
Erla
It’s a bit spooky
May 29, 2008
Það sem er mesta snilldin við þetta WordPress dæmi er að maður sér hvaðan fólk kemur til að skoða síðuna sína… Hingað til hefur MJÖG oft komið upp að fólk hefur farið inn á google.com og gúgglað “erla stefáns fíh” .. einu sinni var meira að segja “erla stefánsdóttir diskó friskó” , þá var mér nú skemmt.
Svo var núna í dag googlað sumsé “erla stefáns gusgus” … Það er naumast.. Hverjir eru þetta eiginlega?
Leyndardómur lífsins I suppose… Ekki mjög margir sem vissu anyway af þessu stuði með gus gus þannig að i’m quite curious…. Hmmm!
Dagurinn sem átti að fara í ekkert nema málningarvinnu og puð endaði í Smáralind með systur minni og móður, Una er að fara til Ítalíu á sunnudaginn og á ekkert nema ullarpeysur (eða í þá áttina) og vantaði jah, ítalskan fataskáp. Mamma og pabbi eru svo að fara til Barcelona á mánudaginn.. Lilja mín er að fara í brúðkaupsferðina sína á laugardaginn og svo er Erla J að fara til Toronto…13. eða 14.júní…nú man ég ekki.
Þannig að míns verður ýkt tómleg og ein að vinna í pleisinu sínu á meðan.. Verð reyndar í Pólska landinu 4.-8.júní þannig að það er nú ekki verra. Svo eru tónleikar í Laugardalshöllinni 16.júní sem verður víst alveg TRYLLT fjör. Það er ekki amalegt börnin góð, ne-hei.
Í kvöld er Bít Box kvöld á Glaumbar, stórsveit samúels j samúelssonar að spila…verður ábyggilega hörku stuð. Ætla uppí íbúð að vinna þangað til samt… Þannig að ef einhver er í málningargallanum og langar að taka í rúllu — gimme a holla yo!

It seems like just one kiss could tell me why
May 29, 2008
Fyrsta æfingin með Gus Gus var áðan…það var mjög magnað, nóg að læra og undirbúa í hausnum en stórskemmtilegt alveg hreint að syngja…og verður alveg trylllllt fjör þegar að við flytjum þetta í Póllandi eftir viku! Weehoo! Svo er MELT festival í Berlín í júlí og margt margt fleira í pokahorninu hjá töfrafólkinu…namminamm!
Á einmitt pantaðan tíma hjá Svani á þriðjudaginn nk. í nýjasta tattooið mitt…Yikes hvað ég er spennt en þetta verður hva…númer 7? Er ekki “the seventh time the charm”? ![]()
Verður verkið algert hernaðarleyndarmál until that time… en ég verð ánægð með það !
Fór svo uppí nýju íbúðina mína og pússaði upp sparsl steypuna eftir daginn í dag. Skrúbbaði skítugasta eldhús í sögunni og hlustaði á Primus og Söruh Vaughan…sem er ógeðslega steikt samblanda…! Ætla að reyna að tækla bigtime á morgun, bróðir minn ætlar að koma og hjálpa til eftir vinnu, það verður gaman… bonda yfir rúllum og málningarlykt.
Mig vantar samt HEVÍ ískáp!? Lilja var svo góð að vorkenna fátækri dömu og lét mig fá til afnota gamla sjónvarpið sitt, blender og svo fæ ég bráðlega gorgeous ristavél frá henni
Þannig að..mig vantar bara…ALLT hitt…hehe…Tók þá ákvörðun í dag að ég ætla að fá gamla píanóið hennar mömmu sem er búið að vera uppí tónlistarskóla í nokkur ár núna og það er svo fallegt og gamalt og hefur hvergi átt heima neins staðar…. en það fær loksins að eignast heimili
Skal stilla það og eiga góðar stundir með gripnum sem ég notaði til að æfa mig á píanó þegar ég var alger stubbulína, 6 ára eða e-ð.
Hvað er málið með það að þegar maður er orðinn OF þreyttur að þá er engin leið fyrir mig að drulla mér í rúmið? undarleg samblanda..
Á einhver góðar bækur til að lána mér fyrir bílferðir på Poland?
cheeeeeeeeeck !
Erla
ævintýri á hverju horni hjá frúnni
May 27, 2008

Við erum ekkert að spauga hvað það er margt skemmtilegt framundan hjá manni..
knús
ER
hmm
May 12, 2008
Á mbl.is er stór fyrirsögn og hafa verið margar yfir daginn en núna er “10 þúsund látnir í Kína”…og hafa þær verið ansi margar sjokkerandi í dag..
Þegar ég skoða flokkinn “Mest lesið” þá er verið að lesa meira um að Hugh Hefner vilji fá Miley Cyrus í Playboy myndatöku heldur en um aðstæðurnar í Kína..
Ég segi nú bara… REALLY ???
Kannski er ég coming back… slowly.. Maður hleypur ekki maraþon eftir hlaupapásu – maður byrjar á að fara út að skokka… Ain’t it so my dears….