Be there.
July 30, 2008

Wednesday, July 30, 2008
|
Testum nýtt stuð á Nasa! Þó ekki hafi mikið farið fyrir fremstu danssveit Íslands, Gus Gus, uppá síðkastið hefur hún alls ekki setið auðum höndum. Prímusmótórar sveitarinnar, President Bongo og Biggi Veira, hafa frá áramótum unnið að nýju og rassvöðvastyrkjandi góðmeti fyrir eyru og dansgólf. Þetta nýja efni mun að lokum rata á næstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur út snemma á næsta ári. Gus Gus halda sína fyrstu tónleika á heimavelli 16. ágúst næstkomandi, í daglegu tali kannast almenningur við heimavöll sveitarinnar undir nafninu Nasa. Miðar á tónleika þeirra á heimavellinum hafa iðulega rokið út á mettíma og er ekki búist við að undantekning verði gerð á að þessu sinni. Fyrir tónleikana verður hljóðkerfi staðarins skipt út til að uppfylla hljóðkröfur sveitarinnar sem og að tónlistin skili sér í fullum gæðum til aðdáenda. Tónleikaprógrammið verður að miklu leyti samansett af nýju efni sem að hluta til var flutt á stærstu tónleikum sveitarinnar hér á landi í Laugardalshöll í júní – annað efni er splunkunýtt og hefur aldrei heyrst á tónleikum áður. Á heimavelli er sveitin aldrei betri og nálægðin í fyrirrúmi. Miðasala hafin á miði.is |
Melt festival
July 28, 2008
Erla, vinstra megin
Stormurinn góði
July 16, 2008
Tékkland, Stormurinn & Blómið
July 14, 2008
Alright. Þá er allt gengið komið heim og hvíííílík saga á bak við þetta litla, krúttlega ferðalag til Tékklands!
Byrjum bara from the top. Gefum ekkert upp.
Á föstudaginn fórum við í flug til Köben þarsem við tókum tengiflug til Vínarborgar… Þaðan kom bíll sem keyrði okkur ca. 120 km til bæjarins Brno (sem er þekktur fyrir Brno riffla og að vera önnur stærsta borgin í Tékklandi!).. Komum á hótelið uppúr miðnætti og tókum rölt í bæinn og fundum þar gríðarlega sveittan Kebab/Asian/…whatshallInameit stað sem var opinn alla nóttina..það var mjög gaman, sátum, borðuðum og drukkum kaldan bjór í gríðarlegum hita!!
Svo fóru allir í sín eigin single room, ég og Forsetinn vorum á 10.hæð á meðan allir hinir voru á 4.hæð…
Við Ásta höfðum tjékkað á því kvöldinu áður og fundið út að það væri sundlaug á hótelinu og átti víst að vera rosa nice aðstaða þannig að við ákváðum að stilla klukkurnar og fara í morgunmat, út að labba og finna okkur sundföt því við klúðruðum því báðar að taka með. Vöknuðum 9, morgunmatur og út í bæinn sem er alveg gríííííðarlega fallegur!!! Fyrsta sem við sáum var H&M.. útsala… Stóðumst ekki mátið og hlupum inn, ég með háleit markmið að kaupa ekkert! Þannig að ég gekk út með skópar(reyndar alveg hrooooottalega flotta og skvísulega), nærfatasett, spiderman derhúfu og spiderman bol.. Þokkalega. Röltum og röltum, keyptum sitthvorn sundbolinn og alveg eins klúta.. Borðuðum góðan lunch og sátum á endanum með Bigga, Skugga og Agga í brjálaðri rigningu, algert hitaskúrs brjálæði…enda var svo heitt um morguninn.
Fórum aftur upp á hótelið, í sundbolina og beint í sundið. Sem var minnsta sundlaug í HEIMI… í baksundi voru þetta tvö “stroke” og þá var maður kominn á hinn bakkann. En þetta var ótrúlega nice, sátum í pottinum bara tvær og blöðruðum um ALLT á milli himins og jarðar…
Svo tókum við okkur til. Fengum okkur gin&tonic og hlustuðum á geðveika tónlist í iPodnum hennar Ástu í herberginu hennar… algerar skvísur. Tókum bíl í ca. klst á festivalið sem heitir Creamfields Festival… Hugsaði upphátt nokkrum sinnum hvort það myndi koma aftur svona brjáluð rigning, miðað við þessi þykku, svörtu ský þarna lengst í burtu. Var bara að spá… Jææja, röltum um festivalið og athuguðum stemninguna, fengum okkur gott að borða og héngum bara endalaust…Vorum með svona húsvagn/trailer sem dressing room…
Svo kom the turning point – við sátum í matartjaldinu að snæða þegar catering-konan kemur að okkur og segir
“Uhm…excuse me, but I have to clear everything off the table now”…
“why?” …
“oh, because there is a storm coming in about 10 minutes”
Varð litið til “ætli-það-verði-rigningar-skýjanna” sem voru orðin nánast svört, krulluð og á FEYKIHRAÐA til okkar… Allir hlupu að ná í myndavélarnar og horfðu á allt nálgast….Svo kom rokið allt í einu í fangið á okkur og allir út um allt að reyna að redda hinu og þessu… Stóðum þarna og fylgdumst með eldingunum, þvílíkt og annað eins hef eg ekki séð… Svo drifum við okkur inn þegar þetta var nánast komið fyrir ofan okkur og þá byrjaði rigningin – rafmagnið var allt tekið af..
Svona án gríns, þá hef ég nú bara aldrei lent í öðru eins!!! BRJÁLUÐ rigning, eldingar sem maður gat ekki annað en hlegið að því það var svo absurd mikið og klikkað rok.
Galdur greyið lenti næstum undir einhverri rosalegri járnstöng OG kæli… kom hlaupandi inn í hálfgerðu sjokki skiljanlega… forsetinn hljóp út með myndavélina sína, agga var hvergi að finna og það voru ég, ásta, biggi, skuggi og galdur inní húsvagninum þegar það mesta gekk á..
Sviðið sem við áttum að spila á lagðist nanast í rúst… fauk allt út um allt og þetta var bara hálf hlægilegt…
Svo komust allir inn í húsvagninn og veðrinu lægði svona…temmilega…var ennþá hörku rigning og eldingar um allan himininn..
Svo kom hinn tékkneski “Josh Hartnett” og tilkynnti að öllu live dæmi væri cancelað á sviðinu okkar… !!!
Þvílíkt spennufall…hehe…Strákarnir reyndu eitthvað að fá að spila í einhverju techno-tjaldi sem var í gangi (Það voru nokkur sem voru í gangi seinna um kvöldið og þau voru stútfull af fólki að forðast veðrið) en það var ekki hægt… Þannig að ég, ásta, biggi, galdur og bongo enduðum með að fara aðeins í tjöldin og dansa… það var stórfenglega gaman…algerlega hápunkturinn á öllum deginum! Þar kom upp “Blómið” sem mun aldrei verða útskýrt, það var gjörningur sem átti sér stað þar og voru algerlega fyndnustu móment sem ég hef upplifað ![]()
Jahá…Svo fór gærdagurinn í algert chill, ég og ásta fórum í morgunmatinn, í pottinn og smá gufu og trítluðum upp á hennar herbergi (þarsem ég átti ekkert queen sized rúm) í hótelsloppunum og steiiiiinsofnuðum fram á hádegi… Svo rúta til Vínar, smá stopp til að fá sér schnitzel og bjór, flug til Amsterdam… hangs á flugvellinum þar og svo flug hingað heim..
Þannig að þetta var mjööög fyndin ferð… Auðvitað kom bara… óveður ! hehe…
En það er nú bara stutt í næstu ferð…. en þá er ferðinni haldið á MELT festival í Berlín næstu helgi… þá koma allir með og ég hlakka alveg gríððððarlega til… komin með svona uppsafnaðan spenning að hafa ekkert fengið að syngja í fyrrakvöld
Spilum á föstudagsnótt, eitthvað um 3 leytið skilst mér…og eigum að vera komin heim til Íslands á sunnudagshádeginu, eitthvað svoleiðis. Þannig að ég veit ekki hvað við getum séð af laugardagsprógramminu, vonandi sem flest !!!
Jæja..þannig var nú það. Hehe..held ég hafi ekki skrifað svona langt í langan tíma. újé…
Er vel þreytt eftir ferðina samt…ætla að koma mér í nýju íbúðina í dag/kvöld. vonandi verður netið komið í gang þar…
Bið ykkur öll vel að lifa!
Erla
oh, that was so real
July 8, 2008
Er ekki kominn tími á svona “non-quote” blogg…
Héðan er nú bara allt sæmilega hresst að frétta… Drengurinn byrjaður í sumarfríi og þá er nú eins gott að hafa prógramm allan sólarhringinn… Fórum einmitt í lunch í dag með henni Ástu “frænku” í Kringlunni, rúlluðum í sund og héngum þar í tæpa 2 og hálfa klukkustund! Ógurlega gaman … Gabríel er svo skemmtilegt barn…mikið er ég fegin..hehe…það er bara svo gaman að hafa hann og vera með honum en ég veit ekki hvor er þreyttari þegar hann er lagður vel baðaður, tannburstaður og kremaður í hrein náttföt í rúmið og ég er með hárið útí loftið og bauga niður á höku…
That’s motherhood allright!
Svo er ferðinni haldið út næstu helgi… ooooooo hvað ég hlakka til ! Erum að fara til Tékklands að spila á festivali sem heitir Creamfields minnir mig. Svana góða kemst ekki með svo að gísli galdur kemur inn í bakröddum í staðinn… það verður bara gaman og öðruvísi!
Svo helgina eftir er ferðinni haldið til Berlínar á Melt festival sem er, að mér skilst, eitthvað brjálað stuð.
Er að endurnýja kynni mín við GRACE plötuna….vá hvað ég hlustaði á hana í hengla á tímabili…úff…ég man alveg af hverju….þvílíkir töfrar..
Jæja, vona að allir séu hamingjusamir og ég spyr með einlægum áhuga, hver er búinn að gúggla “erlastef” nánast daglega uppá síðkastið?
erlastef
estef
rob and laura
July 7, 2008
Top five things I miss about Laura. One; sense of humor. Very dry, but it can also be warm and forgiving. And she’s got one of the best all time laughs in the history of all time laughs, she laughs with her entire body. Two; she’s got character. Or at least she had character before the Ian nightmare. She’s loyal and honest, and she doesn’t even take it out on people when she’s having a bad day. That’s character.
[holds up three fingers]
Three;
[long pause, hesitantly]
I miss her smell, and the way she tastes. It’s a mystery of human chemistry and I don’t understand it, some people, as far as their senses are concerned, just feel like home.
[shakes his head, recollecting, then looks back and lip synchs 'four' while holds up four fingers]
I really dig how she walks around. It’s like she doesn’t care how she looks or what she projects and it’s not that she doesn’t care it’s just, she’s not affected I guess, and that gives her grace. And five; she does this thing in bed when she can’t get to sleep, she kinda half moans and then rubs her feet together an equal number of times… it just kills me. Believe me, I mean, I could do a top five things about her that drive me crazy but it’s just your garden variety women you know, schizo stuff and that’s the kind of thing that got me here.
henry lee…
July 4, 2008

![]()
