Snilld á sunnudegi

October 26, 2008

Horfið á þetta!

October 24, 2008

Alger snilld. Þó þessi kona sé norn

Holy F*ck

October 9, 2008

Já, það er nú pæling hvort maður eigi ekki að blúúúúgga örlítið? Búin að fá ör-kvartanir um engin skrif, bara jútúb og ruglerí….

Hvað skal segja…
Skólinn – Insane. Held að það sé ekki til neitt betra orð í rauninni… Er í kúrs núna sem heitir Markaður og Form og er samstarfsverkefni með markaðsfræðinemum úr Háskóla Reykjavíkur… Fengum fyrirtæki til að vinna með og eigum að hanna eitthvað product annaðhvort eða concept í kringum það..Fyrirtækið okkar heitir Fjöliðjan og er á Akranesi… fyrir fólk með special needs, vinnustaður og endurhæfing.
Þetta er rosalega challenging og búið að taka þvílíkan tíma og vinnu…Og námskeiðið rétt rúmlega hálfnað og engan veginn að minnka vinnan… Svo er ég í öðrum kúrsum líka og það er bara voða fínt…Finnst reyndar skemmtilegast í tískuteikningunni, er að reyna að opna mig fyrir nýjum pælingum í teikningunni hjá mér og lenti einmitt í smá svona “breakthrough” í gær, sem er einmitt mjöööög gaman !

FÍH-skólinn – Ógeðslega er gaman að vera komin aftur í skólann.. Iða af spenningi fyrir söngtímana og er að reyna að taka á mér að vera skipulögð og organized fyrir stigsprófið í vor, svo það lendi ekki í einhverju madness á sama tíma og annars árs tískusýningin er…Holy canoodle. Finn samt að það er erfitt að juggle-a skólunum báðum og sérstaklega þegar ég er með Gabríel…en það meikast allt á endanum…

Lífið -  Jájá…Einkennist bara af þessum skólum mínum !!!

Heilsan – Frekar súr…er með króóónískan hausverk og er, amk þessa vikuna, búin að vera svo þreytt á kvöldin að ég man ekki eftir því að hafa sofnað…That’s kinda sick.
En það er bara þreyta og ég passa mig…jájájá…. Líður reyndar núna einsog ég sé komin með hita, er rauðeygð og með geðveikan hausverk…vegna þreytu! Hah..og hananú

Er að fara í leikhús næstu helgi og þarnæstu…Það verður óóógurlega gaman! Ætla á Gosa á sunnudaginn nk. með mömmu og gabríel og svo fer ég á Fólkið í blokkinni laugkvöldið þarnæst…
Rock’n'roll…
Ætla að preppa morgundaginn, baða, svæfa, læra, læra, læra, læra……..Og svo framvegis :)

Ást&Friður&Kreppa